
Ég og Ari erum byrjuð á fullu í skólanum. Bekkurinn sem ég er í heitir 6 CR og er elsti árgangurinn í skólanum. Ari er í 1. bekk. Við erum í sama hluta af skólanum, Ari er á neðri hæðinni og stofan mín er beint fyrir ofan hans. Ég er með þrjá kennara; Mrs. Robson, Mrs. MacDonald og ég veit ekki hvað þriðja heitir. Það er voða skrítið að vera í enskum skóla. Það er allt öðruvísi en heima. Ég er t.d. í skólabúningi. Svo er allt voða strangt og allir hlýða um leið og kennarinn segir. Það er samt alveg masað í tímum... Svo eru allir með nesti og allir (nema ég) koma bara með snakk og nammi í nesti! Frekar skrýtið.
Mér gengur vel að læra enskuna en mér finnst stærðfræðin erfið. Það er kennd miklu erfiðari stærðfræði hér en heima. Miklu hærri tölur til að deila og margfalda. Svo fór ég í svona tilraunatíma um daginn. Þá settum við mold og vatn í flösku og svo var svona stútur niður og þar fór vatnið en ekki moldin! Ég var líka veik í tvo daga og fór ekki í skólann en nú er ég alveg hress.
Stundum nær kennarinn hans Ara í mig í tíma eða úti í frímínútum, svo ég geti hjálpað honum. Sumar stelpur stríða honum af því hann er búinn að eignast vinkonu og finnst gott að leiða hana í frímínútum. Hann skilur sem betur fer ekki hvað er verið að segja við hann, annars yrði hann leiður. Sigrún amma sendi mér orðabók sem hjálpar mér mikið við að skilja hvað kennarinn vill að ég geri í tíma. Matthildur Embla kom nefnilega að heimsækja okkur og Anna Barbara sem er besta frænka mín. Þau komu með fullt af gjöfum og það var gaman.
Í gær fékk ég bréf frá Matthildi Soffíu og í dag frá Önnu ömmu. Það er rosalega gaman að fá bréf í póstkassann.
Bæbæ, Andrea músa